Hjartastaður - Hlaðvarp 5. þáttur

Í grunnsýningu Byggðasafns Snæfellinga og Hnappdæla, sem opnaði haustið 2023 og heitir Hjartastaður - er sjóndeildarhringur ungs fólks á Snæfellsnesi frá árinu 1900 skoðaður. Í rannsókn sem gerð var í aðdraganda sýningarinnar voru Snæfellingar sóttir heim til þess að fanga minningar þeirra um ungdómsárin á Snæfellsnesi og reynt var að varpa ljósi á tengsl þeirra við svæðið. Handrit sýningarinnar byggir meðal annars á þessum viðtölum sem tekin voru veturinn 2022 – 2023.
Fjórði viðmælandi minn í þessum hlaðvarpsþætti er Olga Sædís Aðalsteinsdóttir sem fædd er árið 1961 og hefur búið í Grundarfirði mest alla sína tíð. Olga rifjar upp ungdómsárin á áttunda og níunda áratug síðustu aldar og talið berst um víðan völl.
Hjartastaður - Hlaðvarp 5. þáttur

headphones Listen Anywhere

More Options »
Broadcast by