Hjartastaður - Hlaðvarp 6. þáttur

Í grunnsýningu Byggðasafns Snæfellinga og Hnappdæla, sem opnaði haustið 2023 og heitir Hjartastaður - er sjóndeildarhringur ungs fólks á Snæfellsnesi frá árinu 1900 skoðaður. Í rannsókn sem gerð var í aðdraganda sýningarinnar voru Snæfellingar sóttir heim til þess að fanga minningar þeirra um ungdómsárin á Snæfellsnesi og reynt var að varpa ljósi á tengsl þeirra við svæðið. Handrit sýningarinnar byggir meðal annars á þessum viðtölum sem tekin voru veturinn 2022 – 2023.
Fimmti viðmælandi minn er Kári Viðarsson sem fæddur er árið 1984 og ólst upp á Hellissandi. Kári býr og starfar á Hellisandi og Rifi og rifjar upp ungdómsárin og þar ber margt á góma eins og til dæmis unglingatíska, rúnturinn, bílnúmer, fótbolti, náttúran og fleira.
Hjartastaður - Hlaðvarp 6. þáttur

headphones Listen Anywhere

More Options »
Broadcast by